Staðarvalsgreining og forhönnun nýs þjóðarsjúkrahúss að Keldum ætti einungis að taka tólf mánuði og allt tal um að staðarvalsgreining tefji byggingu nýs Landspítala er þvæla. Þetta segir Jón Hjaltalín verkfræðingur og frambjóðandi í 5.sæti Miðflokksins í Reykjavík. Í grein þar sem sem Jón ritar hugleiðingar um byggingu nýs Landspítala bendir Jón á að á málþingi sem samtökin Betri spítali héldu nýlega hafi Hallgrímur Þór Sigurðsson meðeigandi Nordic arkitektarstofunnar í Osló haldið þar erindi um staðarvalsgreiningu, hönnun og byggingu 10 spítala í Noregi og Danmörku, þar sem fram kom að ferlið taki mun skemmri tíma en fylgismenn nýs Landspítala við Hringbraut hafi haldið fram. Í grein Jóns segir „ taldi Hallgrímur upp átta nýleg sjúkrahús sem hafa verið byggð eða sem verið er að byggja í Danmörku og Noregi þar sem heildartími staðarvals, hönnunar og byggingar spítalanna er 5-10 ár eftir stærð þeirra og staðsetningu. Athyglisvert var að allir þessir spítalar hafa verið byggðir á nýjum stað í útjaðri viðkomandi borga í staðin við gömlu spítalana í miðborginni. Hallgrímur kynnti sérstaklega verkefni sem hann er að vinna að sem er nýtt háskólasjúkrahús í Stavanger í Noregi sem á að þjóna 360.000 íbúum svæðisins en íbúar Stavanger í dag eru um 140,000 eða svipað og stór Reykjavíkursvæðið. Sjúkrahúsið verður 205,000 fm með 650 sængum. Staðarvalsgreining var gerð á þremur stöðum í Stavanger og fór fram árin 2015-2016 sem fólst í 6 mánaða staðarvalsgreiningu og forhönnunrferli og 6 mánaða pólitískum ferli (deiliskipulag og leyfisveitingar). Hönnun og bygging sjúkrahússins á þeim stað sem valin var tekur sjö ár og verður tekin í notkun 2023. Staðarvalsgreiningin sýndi fram á að það var tveimur árum skemri tími og mun ódýrar en að byggja við gamla spítalana í miðborg Stavanger„,skrifar Jón. Jón bendir á að Nordic arkitektarstofan búi yfir mikilli sérþekkingu þegar kemur að staðarvalsgreiningum, hönnun og skipulagsvinnu í tengslum við byggingu spítala og heilsutengdum verkefnum kemur og spyr í lok greinar sinnar „hvers vegna tekur staðarvalsgreining sjúkrahúsa, deiliskipulag og leyfisveitingar tíu ár á Íslandi sem Norðmenn klára á aðeins einu ári?„.