Hólmsteinn A. Brekkan framkvæmdastjóri Samtaka leigjenda segir að með því að koma á fót óhagnaðardrifnum leigufélögum verði hægt að skapa jafnvægi á húsnæðismarkaði. Hólmsteinn sem var gestur Markúsar Þórhallssonar og Jóhanns Kristjánssonar í morgunútvarpinu segir byggingaverktaka í raun ráða yfir markaðnum og því verði ekki breytt nema yfirvöld grípi inn í „ þetta er verktakamarkaður eins og þetta er á Íslandi í dag og ef við horfum raunhæft á þetta þá getum við bara sagt að það er ekkert útlit fyrir að það breytist nema með einhverju inngripi frá hinu opinbera„,segir Hólmsteinn.