Segir persónufylgi Sigmundar Davíðs á höfuðborgarsvæðinu hafa verið vanmetið

Jón Kristinn Snæhólm alþjóðastjórnmálafræðingur frá Edinborgarháskóla.

Keppinautar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fyrrverandi forsætisráðherra hafa stórlega vanmetið persónufylgi Sigmundar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Jóns Kristins Snæhólm alþjóðastjórnmálafræðings í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Jón Kristinn segir líklegt að fylgi Sigmundar nái langt út fyrir raðir Framsóknarflokksins “ hann er að róta til sín mikið af Framsóknarmönnum og hugsanlega nær hann að róta til sín líka þessu framsóknaríhaldi sem hefur loðað við Sjálfstæðisflokkinn„,segir Jón Kristinn.

 

 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila