Páll Vilhjálmsson blaðamaður og bloggari segir Pírata vera sérviskuflokk sem ekki geti tekið á neinum alvöru málum sem skipta máli í samfélaginu. Páll sem var gestur Péturs Gunnlaugssonar í síðdegisútvarpinu í gær bendir á að þetta hafi til dæmis komið fram í aðdraganda afgreiðslu búvörulaganna “ þá bara sögðu þeir pass við vissum ekkert um þetta, og þeir hafa áður vísað til þess að þeir viti ekki nógu mikið um mál til að taka afstöðu, og ef maður er svona sérviskuflokkur lítill þá getur maður gert þetta, en ef maður ætlaði að verða afl til þjóðfélagsbreytinga þá getur maður það ekki, Píratar munu ekki vera í stakk búnir fyrir þessar kosningar að breyta sér og verða að alvöru stjórnmálaafli en á hinn bóginn er vel hugsanlegt að þeir fái fylgi eins og þeir væru alvöru stjórnmálaafl„,segir Páll.