Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og Sjálfstæðismaður segir það á gráu svæði að stjórnmálaflokkar séu styrktir fjárhagslega af ríkinu. Viðar sem var gestur Markúsar Þórhallssonar og Jóhanns Kristjánssonar í morgunútvarpinu á Útvarpi Sögu segist vera á þeirri skoðun að stjórnmálaflokkar eigi ekki að vera á styrkjum frá ríkinu “ maður spyr sig af hverju svona mörg örframboð séu að koma fram, getur það verið af því að um leið og menn ná yfir 2,5% þröskuldinn þá fara menn að fá töluvert mikið fjármagn frá ríkinu?, það er spurning hvort það þurfi bara að afnema þetta, ég get ekki séð að það sé eðlilegt að framboð sem ekki ná manni á þing fái fjárframlag og ég tel það í það minnsta á afar gráu svæði að stjórnmálaflokkar fái yfir höfuð styrk frá ríkinu, en ef það er stefnan þá ætti í það minnsta að binda það við að menn nái manni inn á þing„,segir Viðar.