Samgöngumál verða stóra kosningamálið í fyrirhuguðum sveitastjórnarkosningum í vor, og ekki síst hér í Reykjavík. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðbjörns Guðbjörnssonar stjórnsýslufræðings og yfirtollvarðar í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Guðbjörn bendir á að samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu hafi verið vanrækt í áratugi og nú sé staðan sú að ekki verið hjá því komist að taka á þeim vanda sem ökumenn í Reykjavík glíma við daglega vegna vanrækslunnar “ hugsið ykkur að alls sitja menn í tvær til þrjár vikur í bíl sínum á ári bíðandi í biðröðum sem komast ekkert áfram„,segir Guðbjörn.