Verðandi fjölmiðlafulltrúi Donald Trump segir ekkert hæft í þeim fréttum sem fjölmiðlar hafa sett fram um leiðtogafund Donald Trump og Vladimir Putin í Reykjavík. Fjölmiðlafulltrúinn Sean Spicer þvertekur fyrir að slíkur leitogafundur hafi verið ákveðinn og segir að Trump verðandi forseti hafi ekki viðrað þessa hugmynd við breska ráðamenn eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum um heim allan.