Segja enga röskun verða á nauðsynlegri þjónustu við nýbakaðar mæður

Boðaðar aðgerðir ljósmæðra sem felast í niðurfelldri heimaþjónustu við nýbakaðar mæður munu ekki hafa áhrif á veitingu þeirrar þjónustu sem talin er brýn nauðsyn á. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu. Fram kemur í tilkynningunni að heilbrigðisráðherra leiti nú leiða til þess að treysta umgjörð þess rammasamnings sem unnið hefur verið eftir hingað til. Þá segir jafnframt “ Þótt afsögn ljósmæðra af rammasamningi snerti nýbakaðar mæður óhjákvæmilega munu þær engu að síður njóta allrar þjónustu sem þörf er fyrir. Ekki er rétt sem haldið hefur verið fram opinberlega að fyrir liggi drög að samningi í velferðarráðuneytinu sem bíði staðfestingar heilbrigðisráðherra. Hið rétta er að 23. mars sl. komu Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) á framfæri við ráðuneytið minnisblaði með tillögum að breytingum á rammasamningnum sem starfað hefur verið eftir til þessa, í kjölfar samningaviðræðna SÍ við ljósmæður. Tillögurnar sem  um ræðir fela í sér skerðingu á heimaþjónustu ljósmæðra sem ljóst er að myndu hafa töluverð áhrif inn á fæðingardeildir sjúkrahúsanna, þar sem verið væri að breyta faglegum áherslum þjónustunnar með lengri legutíma hjá hluta mæðra og það fæli jafnframt í sér aukið álag á fæðingardeildirnar.“. Fram kemur í tilkynningunni að í dag muni Velferðarráðuneytið funda með Sjúkratryggingum Íslands um stöðuna sem upp er komin og næstu skref í málinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila