Samtökin TJWG (Transitional justice working grops) hafa opinberað upplýsingar sem samtökin búa yfir um aftökur í Norður Kóreu. Samkvæmt upplýsingum samtakanna eru almennir borgarar teknir af lífi fyrir allra augum fyrir minnstu sakir, til dæmis fyrir að hafa stolið smáræði af matvælum og koparleiðslum. Þá er fólk einnig tekið af lífi fyrir að dreifa blöðum frá Suður Kóreu og leggja stund á vændi. Samkvæmt heimildum fréttastofu Reuters eru upplýsingar samtakanna fengnar frá einstaklingum sem tekist hefur að flýja frá Norður Kóreu á síðastliðnum tveimur árum og eru byggðar á 375 samtölum við fólkið. Yfirvöld í Norður Kóreu hafa hafnað því að þau stundi slíkar aftökur en í ályktun SÞ frá árinu 2014 kemur fram að þau mannréttindabrot sem sögð eru eiga sér stað í landinu eigi sér enga hliðstæðu í nútímasamfélögum. Í ályktuninni var Norður Kóreu líkt við stórar fangabúðir þar sem skipulagðar pyntingar, svelti og aftökur ættu sér stað sem sambærilegar væru á við framgöngu nasista í seinni heimsstyrjöldinni.