Umhverfisstofnun segir það vera forgangsatriði að grípa til sérstakra verndunaraðgerða við Látrabjarg þar sem svæðið er farið að láta verulega á sjá vegna ágangs ferðamanna. Á vef Umhverfisstofnunar er bent á að í samtali við starfsmann stofnunarinnar komi fram að sár hafi til að mynda orðið til á bjarginu vegna göngustígs sem sé orðin fimmfaldur sé miðað við þá stærð sem hann var áður. Þá er ágangur ferðamanna farinn að hafa mikil áhrif á fuglalíf í og við bjargið, og hefur lundinn meðal annars fært búsetusvæði sín. Að mati Umhverfisstofnunar kæmi til greina að loka bjarginu fyrir umferð á vissum tímabilum fengi stofnun full yfirráð yfir svæðinu og þá kæmi einnig til greina að friðlýsa svæðið. Bannað er að tjalda á svæðinu en talsverður misbrestur hefur orðið á eftirfylgni í þeim efnum og eru dæmi um að ferðamenn hafist við á bjarginu um nokkurra daga skeið.