Segja Iceland deiluna snúast um grundvallaratriði

icelanddeilanFulltrúar íslenskra stjórnvalda, Samtaka atvinnulífsins og Íslandsstofu hittu á föstudag fulltrúa bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods í þeim tilgangi að ræða deilu um skráningu á orðmerkinu „Iceland“ hjá Hugverkaréttarstofnun ESB (EUIPO). Á fundinum kom fram að Iceland Foods hafnaði því að afskrá orðmerkið „Iceland“ og kynnti tillögur sem stóðust ekki væntingar Íslands. Lagalegum aðgerðum til að ógilda skráningu orðmerkisins „Iceland“ hjá EUIPO verður því fram haldið.
Íslensk stjórnvöld líta svo á að þetta mál snúist um grundvallaratriði. Það sé ólíðandi að einkafyrirtæki eigi einkarétt á orðmerkinu „Iceland“ í öllum löndum Evrópusambandsins, enda komi það í veg fyrir að íslensk fyrirtæki og stofnanir geti skráð vöru sína með tilvísun í upprunalandið Ísland. Stjórnvöld segja að málið hafi alþjóðlega skírskotun vegna áhrifa á vöru- og þjónustuviðskipti og munu íslensk stjórnvöld taka það upp á alþjóðavettvangi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila