Sema Erla Serdar formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi er ein þeirra sem stendur á bak við hatursáróðurssíðu sem beint er gegn Útvarpi Sögu. Í viðtali í Fréttablaðinu í dag heldur Sema því ranglega fram að á stöðinni hefði því verið haldið fram að hún væri „kúgari, ISIS liði, kommúnisti og hryðjuverkamaður“ eins og segir orðrétt í blaðinu. Þá vekur athygli að í viðtalinu heldur Sema því fram að hún komi hvergi nálægt umræddri vefsíðu. Á haturssíðunni má hins vegar sjá að Sema Erla fer mikinn og hefur hún meðal annars sett þar upp texta þar sem auglýsendur eru hvattir til þess að sniðganga útvarpsstöðina. Í færslunni sem textinn er hengdur við hvetur Sema jafnfram aðra meðlimi síðunnar að senda textann á auglýsendur stöðvarinnar og augljóst að aðkoma Semu að haturssíðunni er öllu meiri en hún vill kannast við.