Klaustursmálið og meðferð máls vegna leyniupptökunnar fyrir dómstólum er nauðsynleg til þess að fá úr því skorið hversu langt fjölmiðlar megi ganga þegar kemur að umfjöllunum upp úr leynilegum upptökum, en eins og kunnugt er hafa bæði DV og Stundin . Þetta var meðal þess sem fram kom í samtali Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar í símatímanum í morgun. Arnþrúður benti einnig meðal annars á að þó verið sé að kalla Báru Halldórsdóttur sem gerði upptökuna frægu fyrir dóm sé ekki verið að höfða mál á hendur henni, heldur sé eingöngu verið að varpa frekara ljósi á málið “ þetta er gert ef að mál eru óljós og þetta hefur með sönnunarfærslu dómara að gera áður en tekin er ákvörðun um málaferli og hverjum þá yrði hugsanlega stefnt, þetta hefur ekkert með það að gera að henni verði endilega stefnt„,segir Arnþrúður. Hlusta má á samtalið í spilaranum hér að neðan.