Nauðsynlegt er að skapa sátt um sjávarútveginn og gera þjóðinni á sama tíma kleift að njóta ávinningsins. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Gunnars Braga Sveinssonar oddvita Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi, Margrétar Tryggvadóttur fyrrverandi alþingismanns sem skipar 2.sæti lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur oddvita Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi í kosningaútvarpinu í dag en þau voru gestir Dr. Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur. Þau voru þó ekki sammála um þær leiðir sem fara eigi í þeim efnum og sitt sýndist hverjum. Bæði Lilja og Margrét bentu á að auðlindagjald væri of lágt en Gunnar benti á að auðlindagjaldið kæmi illa við smærri sjávarútvegsfyrirtækin. Í þættinum ræddu þau einnig málefni ferðaþjónustunnar og voru þau sammála um að mynda þurfi heildstæða stefnu fyrir málaflokkinn. Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan.