Skipað í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skipað fulltrúa í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Formaður nefndarinnar er Guðný Sverrisdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri Grýtubakkahreppi, sem skipuð er án tilnefningar og varaformaður með sama hætti er Sigtryggur Magnason aðstoðarmaður ráðherra. Fram kemur í tilkynningu að Samband íslenskra sveitarfélaga hafi tilnefnt sex fulltrúa til setu í nefndinni og jafn marga til vara.
Þá segir í tilkynningunni að hlutverk ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sé að gera tillögur til ráðherra um úthlutanir einstakra framlaga úr sjóðnum annarra en bundinna framlaga. Nefndin er skipuð til fjögurra ára frá og með 1. janúar 2019 en hana skipa:

Aðalmenn:

Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Karen E. Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogsbæ
Daníel Jakobsson, bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ
Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðaráðs í Sveitarfélaginu Skagafirði
Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar
Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ

Varamenn:

Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík
Kristinn Andersen, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði
Friðbjörg Matthíasdóttir, bæjarfulltrúi í Vesturbyggð
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar
Stefán Bogi Sveinsson, bæjarfulltrúi Fljótsdalshéraðs
Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúi Sveitarfélagsins Árborg

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila