Miðstjón Samiðnar samþykkti ályktun á fundi sínum nýverið þar sem skorað er á ríkisstjónina að draga verulega úr tekjutengingum í almannatryggingakerfinu. Fram kemur í tilkynningu að það sé mat miðstjórnar að breytingarnar á lögum um almannatryggingar sem samþykktar voru á síðasta ári hafi komið mjög illa við marga lífeyrisþega vegna mikilla skerðinga og minnkað hvata þeirra til atvinnuþátttöku. Því skori samtökin á ríkisstjórnina að gera nauðsynlegar breytingar svo samspil almannatrygginga við aðrar tekjur verði með þeim hætti að fólk njóti eðlilegs ávinnings af því að greiða í lífeyrissjóð og afla sér atvinnutekna samhliða töku lífeyris.