Karlmaður var skotinn þar sem hann stóð við bílskúr í Märsta í N-Stokkhólmi í morgun. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús í kjölfarið en ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu alvarlega hann er særður. Að sögn Carinu Andersson fulltrúa hjá lögreglunni í Stokkhólmi var maðurinn á leið til vinnu þegar þrír grímuklæddir menn komu að honum og skutu hann í fæturnar. Enginn hefur enn verið handtekinn en lögreglan vinnur að rannsókn málsins.