Skrifað undir samning um Dýrafjarðargöng

Frá undirrituninni

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, vegamálastjóri og forráðamenn verktakafyrirtækjanna Suðurverks og Metrostav frá Tékklandi skrifuðu í gær undir samning um gerð Dýrafjarðarganga en fyrirtækin áttu lægsta tilboð af fimm í verkið. Undirbúningur framkvæmda getur nú hafist. Áætlað var að skrifa undir samninginn í dag á Hrafnseyri við Arnarfjörð að viðstöddum gestum. Vegna veðurs og ófærðar á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðum var það ekki hægt. Ekki var heldur hægt að fresta undirskriftinni lengi, fulltrúar Metrostav voru komnir frá Prag til að skrifa undir og ekki heldur gott vegna verksins sjálfs að fresta undirskrift og því skrifað undir í Reykjavík í dag. Jafnframt var ákveðið að hafa athöfn og fund á Hrafnseyri og við gangamunnann í Arnarfirði þar sem verkið verður hafið um miðjan maí með formlegri athöfn eins og áður er sagt og tekin fyrsta skóflustunga.

Við undirritunina sagði Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, að nú gætu hafist framkvæmdir við langþráðar samgöngubætur á Vestfjörðum. Fagnaði hann þessum stóra áfanga sem og áframhaldandi samstarfi við Suðurverk og Metrostav sem hefðu áður unnið saman að jarðgangagerð hér á landi. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri sagðist einnig fagna samstarfinu við verktakana, þeir hefðu sýnt getu sína í fyrri jarðgangaverkum hér á landi og væri reynslan af samstarfi við þá góð. Tiltók hann að sérstaklega væri ánægjulegt hversu mikil áhersla væri lögð á öryggismál hjá verktökunum.
Vaclav Soukup, forstjóri Metrostav, og Dofri Eysteinsson, forstjóri Suðurverks, kváðust fullir eftirvæntingar að geta nú hafið verkið en fyrsti áfangi er að koma upp aðstöðu fyrir starfsmenn og flytja tæki og búnað á staðinn. Um miðjan maí verður athöfn í Arnarfirði þar sem fyrsta skóflustunga ganganna verður tekin að viðstöddum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, vegamálastjóra, sveitarstjórnarmönnum og alþingismönnum og verður hún jafnframt opin almenningi. Fyrsta skóflustungan fer fram við gangamunnann í Arnarfirði og jafnframt verður dagskrá á Hrafnseyri þar sem flutt verða stutt erindi um vegagerð á Vestfjörðum og fleira auk þess sem boðnar verða kaffiveitingar. Þessi samkoma verður auglýst nánar síðar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila