Skrifuðu undir yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjónustu

undirritunferdathjonustaYfirlýsing um ábyrga ferðaþjónustu var undirrituð af forsvarsfólki yfir 250 fyrirtækja í Háskólanum í Reykjavík þann 10. janúar að viðstöddum forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, sem er verndari verkefnisins. Það eru Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Íslenski ferðaklasinn sem standa að verkefninu í samstarfi við Ferðamálastofu, SAF, Íslandsstofu, Stjórnstöð ferðamála, Markaðsstofur landshlutanna, Höfuðborgarstofu og Safetravel. Ábyrg ferðaþjónusta er hvatningarverkefni um að fyrirtæki tengd ferðaþjónustu sammælist um nokkrar skýrar og einfaldar aðgerðir um ábyrga ferðaþjónustu Tilgangur verkefnisins er að stuðla að því að Ísland verði ákjósanlegur áfangastaður ferðamanna um ókomna tíð sem styður við sjálfbærni fyrir komandi kynslóðir þjóðarinnar.
Helstu áhersluþættir verkefnsins eru:
1. Ganga vel um og virða náttúruna.
2. Tryggja öryggi gesta okkar og koma fram við þá af háttvísi.
3. Virða réttindi starfsfólks.
4. Hafa jákvæði áhrif á nærsamfélagið.
Fram kemur í tilkynningu að yfirlýsingunni verði fylgt eftir með fræðsludagskrá fyrir fyrirtæki um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Nánari upplýsingar og skráningarform er að finna á vef Festu.
Forsetinn sagðist í ávarpi sínu „fagna því þess vegna að þið komið hér saman til að lýsa yfir stuðningi við ábyrga ferðaþjónustu í landinu, að frumkvæði Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð og Íslenska ferðaklasans. Mér er það heiður og ánægja að gerast verndari þessa verkefnis“.
Aðspurð sagði Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, klasastjóri Íslenska ferðaklasans að þessi mikli áhugi á samfélagsábyrgð í ferðaþjónustunni lýsti útbreiddri vitund í greininni um hversu dýrmætt orðspor ferðaþjónustunnar er. Það orðspor skapi allir sem koma að ferðaþjónustunni með athöfnum sínum.
Ketill Berg Magnússon, framkvæmastjóri Festu segir það ánægjulegt hve mörg fyrirtæki í ferðaþjónustu eru tilbúin að heita því af sjálfdáðum að setja sér mælanleg markmið og aðgerðir um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Þetta sé á vissan hátt svar við ákalli ferðamanna og þjóðarinnar um að umhverfisvernd, góð þjónusta og sanngjarnir viðskiptahættir ættu að einkenna ferðaþjónustu á Íslandi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila