Skýrsla og viðbrögð vegna skipulagðrar brotastarfsemi

Embætti ríkislögreglustjóra hefur nú birt áhættumatsskýrslu greiningardeildar um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi en þar kemur fram að skipulögð brotastarfsemi sé alvarlegasta ógn við samfélag og einstaklinga á Íslandi að frátöldum náttúruhamförum. Þá er heildarhættustig varðandi skipulagða brotastarfsemi merkt „gífurleg áhætta“ sem er hæsta áhættustig matskerfisins.

Fram kemur í tilkynningu að dómsmálaráðherra og forsætisráðherra hafa þegar brugðist við niðurstöðum skýrslunnar og fyrirsjáanlegri þróun þessara mála hér á landi með því að skipa sérstakan samráðshóp sem skilgreina skuli nauðsynlegar aðgerðir, forgangsröðun þeirra og fjármögnun. Í hópnum sitja fulltrúar dómsmálaráðuneytis, forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis og eiga niðurstöður að liggja fyrir innan nokkurra mánaða.

Það er mjög mikilvægt að bregðast við þeirri stöðu sem lýst er í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra af festu og ábyrgð. Aðgerðirnar ná yfir mörg málefnasvið og því eru fjögur ráðuneyti sem koma að samráðshópnum sem hefur það brýna hlutverk að greina aðgerðir, forgangsraða og fjármagna svo ráðast megi til verka sem fyrst. Þessari ógn við samfélag og einstaklinga á Íslandi verður mætt, með samhentu átaki ríkisstjórnarinnar,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, dómsmálaráðherra. Smelltu hér til þess að lesa skýrsluna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila