Starfshópi falið að móta tillögur um aðgerðir gegn misnotkun lyfja

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið starfshópi að gera tillögur um aðgerðir til að sporna við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja. Lagt er fyrir starfshópinn að haga vinnu sinni á þann hátt að tekið verði tillit til þeirra sem nauðsynlega þurfa á þessum lyfjum að halda þannig að tillögur að aðgerðum beinist ekki að þeim sem lyfin koma að gagni.  Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili tillögum sínum fyrir 1.maí næstkomandi.
Formaður starfshópsins er Birgir Jakobsson landlæknir og verðandi aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra frá 1. apríl næstkomandi. Aðrir nefndarmenn eru;
Aðalsteinn Jens Loftsson, lyfjafræðingur hjá Lyfju
Áslaug Einarsdóttir, settur skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu
Einar Magnússon, lyfjamálastjóri í velferðarráðuneytinu
Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar
Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri SÁÁ
Þröstur Emilsson, formaður ADHD samtakanna
Þórgunnur Ársælsdóttir, formaður Geðlæknafélags Íslands

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila