Starfshópi falið að vinna að hvítbók um fjármálakerfið

Fjármála- og efnahagsráðherra hyggst skipa starfshóp sem vinna á hvítbók um framtíðarsýn og stefnu fyrir fjármálakerfið á Íslandi, í samræmi við stjórnarsáttamála ríkisstjórnarinnar. Í tilkynningu segir að markmiðið sé að skapa traustan grundvöll fyrir umræðu, stefnumörkun og ákvarðanatöku um málefni er varða fjármálakerfið, framtíðargerð þess og þróun.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að stefnumarkandi ákvarðanir um fjármálakerfið verði teknar eftir umfjöllun Alþingis um framtíðarsýn fjármálakerfisins á Íslandi sem byggi á sérstakri hvítbók um efnið. Gert er ráð fyrir að hvítbókin hafi að leiðarljósi aukið traust á íslenskum fjármálamarkaði, aukið gagnsæi og fjármálastöðugleika. Í stjórnarsáttmálanum segir að ríkisstjórnin vilji vinna að frekari skilvirkni í fjármálakerfinu, að dregið verði úr áhættu vegna óskyldra þátta í starfsemi fjármálafyrirtækja og að sérstaklega verði litið til annarra lítilla opinna hagkerfa og reynslu annars staðar á Norðurlöndunum við mótun framtíðarsýnarinnar.
Starfshópnum er falið að ljúka vinnu sinni fyrir 15. maí með skýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra. Lárus L. Blöndal, hæstaréttarlögmaður og stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins verður formaður hópsins.
Í hópnum munu einnig sitja:
Guðrún Ögmundsdóttir, forstöðumaður lausafjáráhættu og fjármálafyrirtækja hjá Seðlabanka Íslands
Guðjón Rúnarsson, lögmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, hagfræðingur hjá Oliver Wyman í Svíþjóð
Sylvía K. Ólafsdóttir, deildarstjóri jarðvarmadeildar á orkusviði Landsvirkjunar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila