Starfshópur skipaður um fjölbreyttari úrræði fyrir gerendur í ofbeldismálum

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað starfshóp sem meðal annars er falið að kortleggja og skilgreina þjónustuþörf fyrir gerendur í ofbeldismálum og þá sem eru í hættu á að fremja ofbeldisbrot. Hópnum er ætlað að skila ráðherra niðurstöðum sínum 1. nóvember næstkomandi.
Í tilkynningu segir að Velferðarráðuneytið hafi undanfarin misseri leitt vinnu við gerð aðgerðaáætlunar gegn ofbeldi í samfélaginu með fulltrúum dómsmálaráðherra, félags- og jafnréttismálaráðherra, heilbrigðisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra. Í því starfi hafi meðal annars verið kallað eftir fjölbreyttari meðferðarúrræðum fyrir gerendur í ofbeldismálum.  þá segir að í ljósi þess og þeirrar umræðu sem átt hafi sér stað í samfélaginu um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni hafi ráðherra ákveðið að skipa starfshópinn. Hópnum er ætlað að gera tillögur um viðeigandi úrræði og jafnframt um það hvernig megi efla forvarnir og fræðslu til að koma í veg fyrir ofbeldisbrot.  Gert er ráð fyrir að starfshópurinn verði í samstarfi við velferðarþjónustu sveitarfélaganna.
Formaður starfshópsins er Anna Kristín Newton. Aðrir nefndarmenn eru:
  • Andrés Proppé Ragnarsson, tilnefndur af Heimilisfriði
  • Kristín Einarsdóttir, tilnefnd af dómsmálaráðuneytinu
  • Ingigerður Jenný Ingudóttir, tilnefnd af Embætti landlæknis
  • Sigurður Páll Pálsson, tilnefndur af Landspítala
  • Ragna Björg Guðbrandsdóttir, tilnefnd af Bjarkarhlíð
  • Gísli Rúnar Pálmason, tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneytinu
  • Birna Guðmundsdóttir, tilnefnd af Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
  • Böðvar Einarsson, tilnefndur af Fangelsismálastofnun

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila