Starfshópur skipaður vegna skipulags lífslokameðferða

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra  hefur skipað starfshóp sem gera á tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi.
Hópnum er ætlað að taka saman yfirlit yfir þá þjónustu sem stendur til boða sjúklingum sem eru í þörf fyrir líknar- og lífslokameðferð og búa í heilbrigðisumdæmum þessara landsvæða, greina núverandi þörf fyrir líknar- og lífslokameðferð á starfssvæði viðkomandi heilbrigðisstofnana, gera tillögur um skipulag og framkvæmd líknar- og lífslokameðferðar á svæðinu og gera áætlun um kostnað við undirbúning og rekstur í samræmi við tillögurnar.
Formaður starfshópsins er Berglind Víðisdóttir. Aðrir fulltrúar eru Valgerður Sigurðardóttir, tilnefnd af Landspítala, Rún Halldórsdóttir, tilnefnd af Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Sigurður Árnason, tilnefndur af Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Anna María Snorradóttir, tilnefnd af Heilbrigðisstofnum Suðurlands.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila