Lögreglan í Malmö hafa neyðst til þess að grípa til þess að læsa bráðadeild sjúkrahússins í Malmö að næturlagi vegna ítrekaðra hótanna í garð starfsmanna deildarinnar. Að sögn sænsku lögreglunnar er það nánast daglegt brauð að á bráðadeildina séu fluttir einstaklingar sem hafa slasast í hnífabardögum og skotárásum og oftar en ekki hafa fylgt á eftir ofbeldismenn sem telja sig eiga harma að hefna og hóta starfsfólkinu. Vegna ástandsins óskaði stjórn sjúkrahússins eftir því við lögreglu að hún sæi til þess að starfsmenn þyrftu ekki að óttast um öryggi sitt og því hafa verið teknar upp þær starfsreglur að deildin er læst að næturlagi og engum hleypt inn nema þeim sem eru hjálpar þurfi. Svante Normark einn starfsmanna deildarinnar segir í samtali við sænska fjölmiðla að ekki sé alltaf greint frá því opinberlega sem á sér stað á deildinni, til að mynda þeim hótunum sem starfsmenn verða fyrir nánast daglega.