Stefnt að auknu samstarfi Íslands og Japan á sviði mennta- og vísindamála

Lilja Alfreðsdóttir mennta og menningarmálaráðherra og Toshiei Mizuochi, ráðherra mennta- og vísindamála Japan.

Aukin samvinna á sviði mennta- og vísindamála og málefni norðurslóða voru aðalefni fundar Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og hr. Toshiei Mizuochi, ráðherra mennta- og vísindamála Japana, í Reykjavík sem fram fór í vikunni. Á fundi sínum ræddu ráðherrarnir meðal annars mikilvægi skiptináms á háskólastigi og góðra menningartengsla, jafnréttismál og möguleika þess að koma á formlegum samstarfssamningi ríkjanna á sviði tækni og vísinda en það hafa Norðmenn, Svíar og Danir þegar gert. Í gildi eru 34 samstarfssamningar milli íslenskra háskóla og háskóla í Japan en íslenskir og japanskir vísindamenn hafa sameiginlega birt um 300 vísindagreinar, m.a. á sviði erfðafræði, jarðfræði, stærðfræði, tölvunarfræði, stjörnufræði og eðlisfræði.

Japanir hafa sýnt því mikinn áhuga að við aukum samstarf okkar á sviði vísinda- og tæknimála, einkum er varðar málefni norðurslóða og þar eru sannarlega mörg spennandi sóknarfæri. Íslensk stjórnvöld eiga í góðu samstarfi við Japani um ýmis málefni, til dæmis á vettvangi Norðurskautsráðsins þar sem Ísland mun taka við formennsku næsta vor. Þar hafa Japanir átt áheyrnarfulltrúa sl. fimm ár en innan ráðsins er vilji til þess að styrkja og dýpka samstarf og þátttöku áheyrnarríkja,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra að fundi loknum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila