Steingrímur samdi við kröfuhafa án heimildar

sigmundurdavidSigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra segist sammála þeirri niðurstöðu sem fram kemur í skýrslu meirihluta fjárlaganefndar um einkavæðingu bankanna hina síðari. Sigmundur sem var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar í síðdegisútvarpinu í dag ræddi meðal annars um einkavæðingu bankanna hina síðari “ ég er þeirrar skoðunar að menn hafi ekki haft heimildir til þess að ganga frá þessu á þann hátt sem gert var á sínum tíma og ég lýsti því svo sem þá líka á þeim tíma að þetta hafi komið flatt upp á okkur í þinginu þegar það var búið að ganga frá þessu einhvern veginn utan við þingið„,segir Sigmundur. Viðtalið við Sigmund Davíð verður endurflutt í kvöld kl.22:00.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila