Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna hafa tilkynnt Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands að samkomulag hafi náðst um að kannaður verði möguleiki á samstarfi flokkanna í mögulegri ríkisstjórn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forseta Íslands. Jafnframt segir í tilkynningunni “ Fari svo að sátt náist um þá niðurstöðu verður í beinu framhaldi leitað viðræðna við aðra stjórnmálaflokka um aðild að þeirri stjórn. Forseti fylgist náið með þróun þessara viðræðna og væntir þess að komist verði að niðustöðu um myndun nýrrar ríkisstjórnar innan skamms.“