Stjórnvöld hvött til að vinna áfram að lagabreytingum gegn mútubrotum

Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um um glæpi og fíkniefni (UNODC) hvetur íslensk stjórnvöld til að vinna áfram að lagabreytingum sem hafa verið í undirbúningi um að þyngja hámarksrefsingu fyrir mútuboð til opinberra starfsmanna og refsingar fyrir mútubrot í einkageiranum.
Þetta kemur fram í mati á því hvernig íslenskum stjórnvöldum hefur gengið að innleiða ákvæði 3. og 4. kafla Sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu sem Ísland er aðili að. Drög að frumvarpi um breytingar á almennum hegningarlögum vegna mútubrota voru kynnt á vef dómsmálaráðuneytisins í vor en með frumvarpinu er komið til móts við tilmælin með því að leggja til að hámarksrefsing fyrir mútuboð til opinberra starfsmanna verði sex ára fangelsi í stað fjögurra og hámarksrefsing fyrir mútubrot í atvinnurekstri verði fimm ára fangelsi í stað þriggja ára.
Fulltrúar UNODC komu hingað til lands í maí 2016 og hittu fjölda gesta, embættismenn, fulltrúa opinberra stofnana, frjálsra félagasamtaka, fjölmiðla og fleiri. Íslensk stjórnvöld hafa ráðist í ítarlega skoðun á því hvernig ákvæði fyrrnefndra kafla sáttmálans endurspeglast í íslenskum lögum og lagaframkvæmd en fulltrúar UNODC hafa síðan farið yfir þá upplýsingagjöf.
Kafli 3 í Sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu fjallar um þau athæfi sem teljast refsiverð samkvæmt sáttmálanum, svo sem mútubrot, peningaþvætti og fleira. Kafli 4 fjallar um alþjóðlega sakamálasamvinnu, svo sem framsal og samvinnu lögregluliða. Samantekt UNODC um frammistöðu Íslands er aðgengileg á netinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila