Stóru viðskiptabankarnir fá undanþágu frá Samkeppniseftirlitinu til þess að reka sameiginlegt seðlaver

Samkeppniseftirlitið hefur fallist á að veita undanþágu til stofnunar og reksturs sameiginlegs seðlavers gegn tilteknum skilyrðum. Hafa samrekstraraðilarnir, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, skuldbundið sig til að fara að skilyrðunum sem fram koma í meðfylgjandi sátt Samkeppniseftirlitsins og bankanna.
Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að starfsemi seðlavers felist í megindráttum í því að taka við seðlum og mynt frá útibúum, hraðbönkum og öðrum starfsstöðvum viðskiptabanka og sparisjóða, telja og skrá reiðufé, varðveita það, dreifa því til baka til útibúa, hraðbanka og annarra starfsstöðva og koma því, eftir atvikum, til geymslu í Seðlabankanum.
Rökin sem bankarnir setja fram fyrir stofnun og rekstri sameiginlegs seðlavers snúa að því að samrekstur á þessu sviði geti leitt til töluverðs kostnaðarsparnaðar samanborið við að reka hvert seðlaver með aðskildum hætti hjá hverjum banka fyrir sig. Jafnframt gæti sameiginlegt seðlaver verið betur í stakk búið til að uppfylla öryggiskröfur.
Skilyrðum sáttarinnar er m.a. ætlað að tryggja að sameiginlegt seðlaver verði rekið með sjálfstæðum hætti, tryggja jafnt aðgengi allra bærra aðila að hinu sameiginlega félagi, tryggja að verðlagning félagsins miðist eingöngu við þörfina fyrir að viðhalda starfseminni, vinna gegn því að starfsemi félagsins skerði samkeppni á milli eigenda félagsins (stóru viðskiptabankanna þriggja) á markaði fyrir almenna viðskiptabankaþjónustu og tryggja að sú hagræðing sem leiðir af samrekstrinum viðhaldist til framtíðar.
Þá segir í tilkynningunni að undanþágan byggi á 15. gr. samkeppnislaga, en samkvæmt henni getur Samkeppniseftirlitið veitt undanþágu frá banni laganna við samkeppnishamlandi samstarfi fyrirtækja, að tilteknum skilyrðum uppfylltum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila