Stýrihópur skipaður um heildstæðar úrbætur gegn kynferðisofbeldi

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað stýrihóp sem falið er að vinna að heildstæðum úrbótum að því er varðar kynferðislegt ofbeldi. Meginhlutverk hópsins verður að beita sér fyrir framsæknum og samhæfðum aðgerðum stjórnvalda gegn kynferðislegu ofbeldi og kynferðislegri og kynbundinni áreitni með það að markmiði að Ísland verði í fremstu röð í baráttunni gegn hvers kyns kynbundnu ofbeldi.
Verkefni týrihópsins verða meðal annars að gera tillögur um útfærslu á aðgerðum sem kveðið er á um í nýrri aðgerðaáætlun um úrbætur í meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins og taka afstöðu til frekari úrbóta. Einnig mun stýrihópurinn fylgjast með framkvæmd áætlunarinnar og beita sér fyrir fullnægjandi fjármögnun hennar. Þá mun stýrihópurinn einnig beita sér fyrir fullgildingu samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi (Istanbúl-samningsins) og gera tillögu um samræmd viðbrögð stjórnvalda við #metoo-byltingunni, bæði er lýtur að samfélaginu í heild og að Stjórnarráðinu og stofnunum þess sem vinnuveitanda. Loks er hópnum falið að móta stefnu um aðgerðir gegn stafrænu kynferðisofbeldi.
Þá mun stýrihópurinn mun vera forsætisráðherra og ráðherranefnd um jafnréttismál til ráðgjafar í stefnumótun er lýtur að kynferðislegu ofbeldi, kynbundnu ofbeldi og kynferðislegri áreitni í íslensku samfélagi og jafnframt er gert ráð fyrir að allt að 5 milljónum króna verði varið í sérstök forgangsverkefni sem stýrihópurinn mun vinna að á þessu ári.
Formaður hópsins er Halla Gunnarsdóttir, fulltrúi forsætisráðuneytis, en auk hennar eiga sæti í stýrihópnum fulltrúar dómsmálaráðuneytis, velferðarráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og utanríkisráðuneytis.
Gert er ráð fyrir að hópurinn skili verkáætlun til þriggja ára, ásamt yfirliti yfir stöðu verkefnanna og eftir atvikum tillögum um úrbætur og verkefni, til ráðherranefndar um jafnréttismál fyrir 1.september næstkomandi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila