Svíþjóð er á barmi upplausnar og Sósíaldemókratar í Svíþjóð og áhangendur þeirra kjósa að eyða fé í alls kyns gæluverkefni í stað þess að setja fé í að uppræta glæpaklíkur sem nú hafa heilu hverfishlutanna í heljargreipum.
Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Gústafs Skúlasonar í þættinum Heimsmálin, fréttir og fréttatengt efni af erlendum vettvangi í dag en hann var viðmælandi Péturs Gunnlaugssonar.
Gústaf segir að til þess að bæta gráu ofan á svart sé unnið markvisst að því að þagga það ógnarástand sem Svíar búa við niður
“ þetta er bara ekkert rætt og þeir sem ræða þetta eru sakaðir um andúð á innflytjendum og svo taka samfélagsmiðlar þátt í þessari þöggun„segir Gústaf.
Hann segir afleiðingarnar ekki fara fram hjá nokkrum manni
“ í ár hafa verið hér framið fleiri morð heldur en allt árið í fyrra, skotárásir, sprengjutilræði og íkveikjur eru orðið daglegt brauð hér, og þetta er ekkert að hætta, heldur aukast dag frá degi og yfirvöld stefna landinu hraðbyri í borgarastyrjöld„.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.