Aukin tíðni glæpa í Svíþjóð hefur mikið verið í umræðunni að undanförnu og hafa margir íbúar í borgum landsins áhyggjur af öryggi sínu, en daglega berast fréttir af morðum, líkamsárásum nauðgunum og ránum. Gústaf Skúlason sem býr í Stokkhólmi og er hlustendum morgunútvarpsins að góðu kunnur tók viðtal við Guðfinnu Sif Sigurðardóttur íbúa í Malmö þar sem hún lýsir upplifun sinni af því ástandi sem skapast hefur í Svíþjóð en þar segir hún meðal annars frá fólskulegum árásum á saklausa borgara. Hlusta má á viðtalið í heild hér fyrir neðan.