Tæplega 108 milljónum úthlutað til félagasamtaka í þágu velferðar

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur úthlutað velferðarstyrkjum af safnliðum fjárlaga árið 2017. Styrk hlutu 54 félagasamtök til fjölbreyttra verkefna, alls tæpar 108 milljónir króna. Afhending styrkjanna fór fram í Hannesarholti síðasta vetrardag.
Styrkirnir sem veittir eru árlega eru nýttir til afmarkaðra verkefna af hendi félagasamtaka sem starfa á sviði endurhæfingar, málefna fatlaðs fólks, forvarna, fræðslu og fjölskyldu- og jafnréttismála. Er jafnan um að ræða verkefni sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf samkvæmt áherslum ráðherra hverju sinni. Auk þeirra tæplega 108 milljóna króna sem varið er til verkefnastyrkja af umræddum safnlið fjárlaga renna 82 milljónir króna til félagasamtaka sem starfa á grundvelli tveggja ára samstarfssamninga við ráðuneytið.
Fjölmennt var í Hannesarholti við afhendingu styrkjanna þar sem ráðherra þakkaði styrkhöfum fyrir framlög þeirra til samfélagsins með mikilvægum verkefnum sem skiptu svo sannarlega máli og væri því ánægjulegt að geta styrkt. Verkefnin eru fjölbreytt, sum nýleg, önnur eiga sér lengri sögu og eru orðin vel þekkt meðal landsmanna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila