Talsverður fjöldi ökumanna undir áhrifum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft í nógu að snúast undanfarinn sólarhring við að stöðva ökumenn sem reyndust við nánari athugun undir áhrifum fíkniefna.
Tilvikin sem um ræðir voru um tíu talsins og í einu tilvikinu reyndist ökumaðurinn undir áhrifum fimm mismunandi efna, og þá framvísaði ökumaðurinn jafnframt neysluskammti af ótilgreindum efnum.
Í öðru tilviki reyndist ökumaður undir áhrifum þriggja mismunandi efna. Þá hafði lögreglan einnig afskipti af hópslagsmálum á Laugavegi og stillti lögreglan til friðar, og urðu engin frekari eftirmál af handalögmálunum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila