Telja að hækkun auðlindagjalds dugi ekki til þess að fjármagna kosningaloforðin

londunMikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að hækkun auðlindagjalds myndi ekki duga til þess að fjármagna helstu kosningaloforðin. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að hækkun auðlindagjalds geti fjármagnað helstu kosningaloforðin?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 64,36%
Já 28,96%
Hlutlaus 6,68%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila