Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að íslenska ríkið eigi að áfrýja nýföllnum dómi Mannréttindadómstóls Evrópu til yfirréttar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaða könnunarinnar var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hæadegi en í þessari könnun var spurt: Á íslenska ríkið að áfrýja niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu til yfirréttar?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 63%
Nei 37%