Telja að reynt hafi verið að kveikja í íbúð ungrar móður í Stokkhólmi

Lögreglan í Stokkhólmi rannsakar bruna sem kom upp í íbúð í Stokkhólmi í nótt sem íkveikju. Kona sem býr í íbúðinni vaknaði við mikinn reyk og tókst henni að slökkva eldinn og koma ungum börnum sínum út úr íbúðinni. Talið er að helt hafi verið eldsneyti inn um bréfalúgu íbúðarinnar og eldur borinn að. Búið að að girða brunavettvanginn af og er tæknideild lögreglunnar í Stokkhólmi að störfum inni í íbúðinni. Enginn hefur enn verið handtekinn vegna málsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila