Telja að stafræn þjónusta hafi aukið traust til stofnana

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra sat í vikunni fund Norrænuráðherranefndarinnar  um stafræna væðingu á sem haldinn var í Stokkhólmi. Fjármála- og efnahagsráðuneytið tók í lok árs í fyrra við öllum upplýsingamálum ríkisins og stefnumótun á því sviði og stendur nú fyrir sérstöku verkefni sem hefur það að markmiði að efla stafræna þjónustu hins opinbera við borgarana og bæta rekstur.
Á fundinum var meðal annars undirrituð viljayfirlýsing um samstarf Norðurlanda- og Eystrasaltsþjóðanna á sviði gervigreindar. Einnig voru ræddar stafrænar breytingar á stjórnsýslu Norðurlandanna, meðal annars markmið ríkjanna um að veita stafræna þjónustu yfir landamæri og styðja við frjálst flæði fólks, þjónustu, vara, vinnuafls o.fl. milli landanna.
Bjarni kynnti áherslur íslenskra stjórnvalda í innleiðingu stafrænnar opinberrar þjónustu og hvernig unnið er að því að styrkja stafræna innviði með ljósleiðaravæðingu landsins alls. „Það hefur sýnt sig að traust til stofnana og ánægja viðskiptavina þeirra helst í hendur við hversu vel þær standa sig í stafrænni þjónustu og upplýsingagjöf, “ sagði Bjarni og vísaði þar til árangurs RSK á sviði upplýsingamála. Hann vakti einnig athygli á almennri notkun rafrænna skilríkja á Íslandi og hvatti til þess að Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin kæmu sér upp sameiginlegri eða gagnkvæmri viðurkenningu á rafrænum undirskriftum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila