Starfshópur sem skipaður var af Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra og var falið að fjalla um rekstur nýs sjúkrahótels við Hringbraut hefur skilað skýrslu um málið. Í skýrslunni kemur fram að rekstur hótelsins muni hafa mjög jákvæð áhrif á starfsemi Landspítalans og heilbrigðiskerfið almennt og bæta þjónustu við þá sjúklinga sem geta nýtt sér hótelið. Markmiðið sé meðal annars að auka afköst og hagkvæmni í rekstri Landspítalans, einkum með því að færa dvöl sjúklinga í ódýrara rými, fyrir og í lok meðferðar. Þá er lagt til í skýrslunni að tvenns konar gististarfsemi verði á hótelinu. Annars vegar verði þjónusta ætluð þeim sem ekki eru innritaðir á Landspítala en þurfa heilsu sinnar vegna að dvelja fjarri heimili sínu vegna rannsókna og/eða meðferðar (sjúkrahótel). Hins vegar verði þjónusta fyrir sjúklinga sem eru innritaðir á Landspítala en þurfa ekki að vera á legudeild, til dæmis sjúklingar sem eru í virkri meðferð eða sækja dag- og göngudeildarþjónustu og þurfa jafnframt eftirlit og stuðning (sjúklingahótel). Gert er ráð fyrir að þorri notenda hótelsins verði sjúklingar sem eru innritaðir á Landspítala meðan á dvöl þeirra stendur.