Telja það afdrifarík mistök að byggja nýjan Landspítala við Hringbraut

Miðflokkurinn hefur sent frá sér tilkynningu þar sem andstaða flokksins við að nýr Landspítali rísi við Hringbraut er ítrekuð. Þetta gerir flokkurinn þar sem ranglega hafi komið fram í máli ýmissa ráðherra og fjölmiðlamanna að allir stjórnmálaflokkar séu fylgjandi því að nýr Landspítali rísi við Hringbraut. Í tilkynningunni frá flokknum segir meðal annars “  Þessari rangfærslu til stuðnings er gjarnan vísað til þingsályktunar sem samþykkt var rétt fyrir þinglok 2014. Upphaflega tillagan sem lögð var fram sagði að ríkisstjórn skyldi falið að ljúka svo fljótt sem verða mætti undirbúningi byggingar Nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík og hefja byggingu hans. Um þessa tillögu var engin samstaða á Alþingi og var hún raunar notuð til að taka þingstörf í gíslingu við þinglok. Meðal þeirra sem stóðu algerlega gegn þessari tillögu um byggingu nýs Landsspítala við Hringbraut var þáverandi forsætisráðherra og núverandi formaður Miðflokksins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Til málamiðlunar og til að liðka fyrir þinglok var tillögunni breytt á þann veg að ríkisstjórn var falið að ljúka undirbúningi á endurnýjun og uppbyggingu Landspítala við Hringbraut, en hvergi var þar talað um að nýr Landspítali skyldi byggður við Hringbraut. Það er því alrangt að þessi tillaga geti talist einhvers konar samhljóða álit stjórnmálaflokka um framtíðarstaðsetningu nýs Landspítala. Þvert á móti var engin samstaða um það. Þar fyrir utan var Miðflokkurinn ekki aðili að samþykkt umræddrar tillögu af augljósum ástæðum. Miðflokkurinn ítrekar staðfastlega þá afstöðu flokksins að það séu alvarleg og afdrifarík mistök til framtíðar að byggja nýjan Landspítala við Hringbraut, eins og skýr rök frá fjölmörgum fagaðilum hafa ítrekað sýnt fram á

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila