Íbúðalánasjóður hefur að beiðni Þorsteins Víglundssonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, unnið greiningu á vöntun á húsnæðismarkaði á Íslandi. Fjölgun eigna hefur ekki haldist í hendur við mannfjöldaþróun á landinu undanfarin ár. Greining sjóðsins leiddi í ljós að uppsafnaður mismunur á framboði og eftirspurn íbúðarhúsnæðis er um 4600 íbúðir, sé tekið tillit til þess að um 1600 íbúðir séu á hverjum tíma í skammtímaleigu til ferðamanna. Samkvæmt greiningunni er heildarþörfin á uppbygging íbúðahúsnæðis á næstu þremur árum um 9000 íbúðir. Greining sjóðsins er hluti af ítarlegri greiningu á stöðu húsnæðismála á landinu sem Íbúðalánasjóður annst fyrir aðgerðahóp um húsnæðisvandann sem fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar sitja í en hópurinn mun skila tillögum um úrbætur í húsnæðismálum í maí.