Fordómar gagnvart þeim sem glíma við geðrænar raskanir eru enn ríkjandi í dag bæði innan og utan geðheilbrigðiskerfisinsþ Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Valgeirs Matthíasar Pálssonar sem undanfarin ár hefur barist fyrir úrbótum fyrir þá sem þurfa að sækja geðheilbrigðisþjónustu. Valgeir segir fordómana birtast í viðmóti fólks og jafnvel skýrsluskrifum um þá sem glíma við geðheilbrigðisvanda. Þá telur Valgeir að gríðarlega aukningu lyfjanotkunar á Íslandi megi líklega rekja til þess hversu litla þjónustu er að fá í geðheilbrigðiskerfinu þrátt fyrir stöðuga fjölgun þeirra sem þangað þurfa að leita „ lyf eru auðvitað einfalda lausnin og auðvitað verður að gera eitthvað fyrir þetta fólk og þá er oft þægilegt að grípa í lyfin„,segir Valgeir. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.