Elliði Vignisson bæjarstóri í Vestmannaeyjum segist telja að góðir tímar séu framundan fyrir þá sem búa úti á landsbyggðinni. Elliði sem var viðmælandi Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar í síðdegisútvarpinu í gær bendir á að gæðum sé misskipt eftir því hvar fólk býr, en ekki sé þó yfir neinu að kvarta af hálfu landsbyggðarinnar „ langstærsti byggðastyrkurinn er veittur inn á höfuðborgarsvæðið, það er þar sem að öllum ríkisumsvifunum er valinn staður og ég er nú fylgjandi að svo sé en við á landsbyggðinni höfum fullt tilefni til þess að bera höfuðið hátt, við erum matvinnungar og gott betur„,segir Elliði.