Hagfræðingurinn Tino Sanandaij sem er af kúrdískum ættum en er búsettur í Svíþjóð telur íslendinga geta lært af þeim mistökum sem átt hafa sér stað í Svíþjóð í málefnum innflytjenda. Gústaf Skúlason sem er hlustendum Útvarps Sögu að góðu kunnur ræddi við Tino sem sjaldan veitir fjölmiðlum viðtöl en féllst á að ræða við Gústaf, meðal annars um innflytjendamálin en þar sagði Tino meðal annars “ Ísland er kannski það síðasta af Norðurlöndunum sem komist hefur hjá samþjöppun innflytjendahverfa og hafið farið mjög varlega í þessum málum. Þið eruð lítið land með svipaðan fólksfjölda og Malmö og það nægir að gera ein mistök til þess að allt fari á versta veg. Þið hafið hingað til haft duglega innflytjendur sem komið hafa gagngert til þess að vinna. Aðrir hafa ekki haft vanda með þá tegund innflutnings heldur. Það er þegar innflytjendur koma frá fátækum löndum þriðja heimsins sem maður verður að fara varlega í málin. Þið gætuð fylgst með og rannsakað hvernig málin hafa þróast í Svíþjóð og þá komist þið kannski hjá þessum erfiðu árekstrarsömu umræðum um þessi mál“. Viðtal Gústafs við Tino Sanandaij má lesa í heild sinni með því að smella á tengilinn hér að neðan.