Staða Donald Trump forseta Bandaríkjanna er sterk þrátt fyrir mótlætið sem hann hefur mætt. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Dr. Ólafs Ísleifssonar í síðdegisútvarpinu í gær en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Ólafur telur að þrátt fyrir að Trump hafi flesta fjölmiðla á móti sér þýði það ekki endilega að staða hans sé veik, og gæti jafnvel náð endurkjöri í næstu forsetakosningum “ ég var einmitt að nefna hér dæmi um mann sem hafði allt fjölmiðla apparatið á móti sér, Richard Nixon og hann vann stórsigur á móti veikum frambjóðanda 1972, og þá segi ég, hvað er nú líklegt að demókratar geti komið með sterkan frambjóðanda næst, slíkur aðili er bara ekki í sjónmáli„,segir Ólafur.