Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir að það væri löngu búið að breyta fyrirkomulagi lífeyrissjóðskerfisins og bankanna ef þeir sem þar bera ábyrgð og stjórna hefðu raunverulegan vilja til breytinga í þágu almennings. Þetta kom fram í máli Ragnars Þórs í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar. Ragnar segir að sú staðreynd að engu hafi verið breytt í kerfinu sýni að þeir sem hafi valdið til að breyta sé ekki umhugað um hag almennings „ ef þeim væri virkilega umhugað um stöðu fólks, stöðu lífeyrisþega þá væru sjóðirnir og verkalýðshreyfingin t,d búin að stofna hér banka, endurreisa gamla Alþýðubankann eða stofna hér banka á samfélagslegum grunni og það væri líka búið að fækka lífeyrissjóðum í einn„,segir Ragnar. Þátturinn verður endurfluttur í kvöld kl.22:00.