Þátttakendum í tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðals veittar viðurkenningar

Í dag lauk á jafnréttisþingi tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðals sem staðið hefur frá árinu 2013. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra veitti þátttakendum viðurkenningar en markmið verkefnisins var að prófa jafnlaunastaðalinn og átta sig á umfangi innleiðingar hans, ávinningi og áskorunum.

Bjarni sagði í ávarpi sínu að tilraunaverkefnið hefði verið óvissuferð og allir þátttakendur hafi innleitt jafnlaunakerfi í fyrsta skipti. Ánægjulegt hafi verið að sjá að stjórnendur á vinnustöðum sem þátt tóku settu verkefnið í forgang, mættu kröfum staðalsins og uppfylltu þau skilyrði sem sett eru fyrir vottun jafnlaunakerfa. Sú góða reynsla sem orðið hefði til í verkefninu nýttist nú í vinnu við almenna innleiðingu jafnlaunastaðalsins.

Ráðherra benti á að ríkisstjórnin hefði nýlega samþykkt tillögur um aðgerðir til að styðja enn frekar við innleiðingu jafnlaunastaðalsins þannig að tryggja megi að fyrirtæki og stofnanir geti unnið að innleiðingu hans og öðlast jafnlaunavottun innan þeirra tímamarka sem lög um jafnlaunavottun gera ráð fyrir.

Þátttakendur fengu viðurkenningar
Eins og fyrr segir veitti fjármála- og efnahagsráðherraveitti þeim aðilum sem tóku þátt í tilraunaverkefninu viðurkenningu og þakkaði þeim fyrir að varða veginn í þessu mikilvægi verkefni. Sagðist ráðherra vona að það verði til þess að það takist að útrýma kynbundnum launamun á Íslandi.

Eftirfarandi fyrirtæki og stofnanir fengu viðurkenningu:

Vátryggingarfélag Íslands – VÍS
Össur
Hafnarfjarðarbær
Tollstjóri
Landmælingar Íslands
Velferðarráðuneytið

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila