Helsti orsakavaldur húsnæðisvandans á höfuðborgarsvæðinu er þéttistefna borgaryfirvalda. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur oddvita Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi Norður í kosningaútvarpinu í dag en hún var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Guðfinna bendir á að í stað þess að byggja á þeim lóðum sem borgin á hefur öll áherslan verið lögð á þéttingu byggðar “ og það tekur mun lengri tíma að byggja íbúðir á þéttum reitum og því er þessi staða uppi sem við sjáum„,segir Guðfinna. Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan.