Þingflokkur Pírata fordæmir framsalskröfu gegn Julian Assange harðlega

Julian Assange stofnandi Wikileaks.

Þingflokkur Pírata hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem framsalskrafa bandarískra yfirvalda gagnvart Julian Assange stofnanda Wikileaks er fordæmd harðlega. Í tilkynningunni segir meðal annars “ Framganga bandarískra stjórnvalda í máli Assange er bein aðförað fjölmiðlafrelsi enda er gróflega vegið að vernd uppljóstrara sem gjaldfellir lýðræðislegt eftirlitshlutverk fjölmiðla. Blaðamenn sem fjalla um jafn brýn mál og þjóðaröryggi eru nú orðnir að skotspóni lögregluaðgerða og lögsókna. Hafa verður í huga að fyrir tilstuðlan Julian Assange var almenningur upplýstur um stríðsglæpi Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra.“ Þá segir einnig í yfirlýsingunni „Þegar fjölmiðlafólk nýtur ekki verndar til að fjalla um viðkvæmarupplýsingar grefur það undan getu þeirra til stunda gagnrýna blaðamennsku. Herferð Bandaríkjastjórnar gegn blaðamennsku af þessari tegund mun hafa víðtæk áhrif sem munu bergmála um allt samfélagið. Píratar vona að breskir dómstólar muni við meðferð framsalsbeiðni Assange síðar í dag láta tjáningarfrelsi og réttindi fjölmiðla vega þyngra en þöggunartilburði og hefnigirni Bandaríkjastjórnar.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila